Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Ragnhildur í öðru sæti í Austurríki
Stelpurnar voru kampakátar eftir fyrsta hringinn, allar á 68 höggum, f.v. Andrea, Ragga og Hulda Clara.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 22. maí 2026 kl. 15:13

Ragnhildur í öðru sæti í Austurríki

Ragnhildur Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR endaði í 2. sæti á Allegria Ladies mótinu á LET Access mótaröðinni í Evrópu en mótinu lauk í dag á Sudburgenland vellinum á Allegria golfsvæðinu í Austurríki. Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir stóðu sig líka vel en þær byrjuðu allar mjög vel í fyrsta hring og voru jafnar í 3. sæti.

Ragnhildur lék hringina þrjá á 68-71-70 og var í toppbaráttuni allan tímann. Hún endaði höggi á eftir sigurvegaransum, hanna Tauber frá Þýskalandi. Ragga byrjaði reyndar frekar illa á fyrstu níu holunum í lokahringnum og var tvo yfir en setti í gír á næstu holum og fékk tvo fugla og örn á 15. braut, var þá höggi á eftir forystukonunni. Ragga missti aðeins flugið í lokin og tveir skollar gerðu það að verkum að hún náði ekki að hirða titilinn en annað sætið frábær árangur. Þær tvær efstu voru einu kylfingarnir sem léku undir pari á 54 holunum.

Hulda Clara lék á 68-73-74 og endaði jöfn í 23. sæti á tíu yfir pari.

Andrea endaði jöfn í 43. sæti með hringina 58-77-75.

Úrslit:

Ragnhildur færist upp stigalistann en hann hafði ekki verið uppfærður þegar þetta er skrifað.

Ragnhildur endaði í 8. sæti á stigalistanum á síðasta ári, einu sæti frá þátttökurétti á LET Evrópumótaröðinni.