Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Ragnhildur í 3. sæti í Manchester - tvær á topp 10 á stigalistanum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 10. júlí 2026 kl. 18:22

Ragnhildur í 3. sæti í Manchester - tvær á topp 10 á stigalistanum

Ragnhildur Kristinsdóttir endaði jöfn í þriðja asæti á Enska meistaramótinu í Manchester á LETAS mótaröðinni sem lauk í dag. Ragga deildi efsta sætinu fyrir lokahringinn sem gekk ekki alveg að óskum en engu að síður mjög flott frammistaða.

Ragnhildur endaði á níu höggum undir pari. Hún lék lokahringinn á höggi yfir pari eftir að hafa verið á tíu undir pari eftir tvo hringi. (69-65-73)

Andrea Bergsdóttir lék lokahringinn á höggi undir pari og endaði jöfn í 12. sæti á fimm undir pari. (71-69-71)

Hulda Gestsdóttir lék lokahringinn á 75 höggum, +3 og endaði á höggi undir pari í heildina og jöfn í 33. sæti. (71-69-75)

Stelpurnar unnu sig allar upp stigalistann. Hulda Clara er nú í 4. sæti með 742,5 stig, Ragnhildur er kominn í 8. sæti með 682 stig og Andrea er nú í 24. sæti með 303 stig.

Lokastaðan.