Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Ragga með níu fugla - lék annan hringinn á sjö undir og er í toppsætinu
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 9. júlí 2026 kl. 21:57

Ragga með níu fugla - lék annan hringinn á sjö undir og er í toppsætinu

Ragnhildur Kristinsdóttir fór mikinn í öðrum hring á Enska meistaramótinu í Manchester á LETAS mótaröðinni. Ragga lék annan hringinn á sjö undir pari, 65 höggum og deilir efsta sætinu með Thalia Martin frá Englandi þegar einn hringur er eftir.

Ragga fékk hvorki fleiri né færri en níu fugla á hringnum en tveir skollar bættust við. Frábær hringur.

Hulda Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir eru á fjórum undir pari en þær hafa báðar leikið og 72 og 69 höggum og eru jafnar í 17. sæti.