Ragga í toppbaráttunni
Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR lék best íslensku kylfinganna á öðrum hring á Arkea mótinu á LET Access mótaröðinni í Evrópu en leikið er í Frakklandi. Ragga var á þremur undir í dag og er jöfn í 9. sæti, fjórum höggum á eftir efsta sætinu og er á -2.
Ragga lék flottan hring, fékk fjóra fugla og einn skolla og hefur leikið á 73-69.
Andrea Bergsdóttir lék annan hringinn á pari og er á +2, 74-72.
Hulda Clara sem lék á -1 á fyrsta hring lenti í vandræðum á öðrum hring og kom inn á fimm yfir pari, +4 í. heildina. Hún komst ekki í gegnum niðurskurðinn.





