Óliver Elí leikur í undanúrslitum gegn Evrópumeistaranum
Keiliskylfingurinn ungi, Óliver Elí Björnsson hefur farið mikinn á The R&A Boys’ Amateur Championship, stærsta unglingamóti heims en hann vann öruggan sigur á Dananum Christian Photin Hansen í átta manna úrslitum í morgun, 4/3. Óliver er kominn í undanúrslit og mætir þar Frakkanum Tao Pemerika, ríkjandi Evrópumeistara unglinga.
Óliver Elí sem komst í gegnum höggleikinn með 66 högga hring í öðrum hring eftir að hafa verið í 118. sæti eftir þann fyrsta - hefur nú unnið fjóra leiki í röð í holukeppninni á Glasgow Gailes Links vellinum í Skotlandi.
Í fyrstu umferð vann Óliver Skotann Aidan Lawson 3/2 og hafði síðan betur gegn Adam Fahey frá Írlandi í 32 manna úrslitum.
Leikurinn gegn Frakkanum Jayson Piermont í 16 manna úrslitum var gífurlega spennandi. Óliver var þrjár holur upp snemma í leiknum en var tveimur undir þegar aðeins tvær holur voru eftir. Hann vann 17. holuna og setti síðan niður um 13 metra langt pútt á 18. holunni til að jafna leikinn. Óliver tryggði sér loks sigur á 20. holu og sæti í átta manna úrslitum.
Óliver hélt uppteknum hætti í 8 manna úrslitum þegar hann mætti Dananum Photin Hansen í morgun. Óliver vann fyrstu fimm holurnar. Hann var kominn sjö holur upp eftir níu en Hansen klóraði í bakkann með fjórum fuglum í röð, en munurinn of mikill og lauk leiknum á fimmtándu holu.
Framundan er undanúrslitaleikur sem hefst kl. 12.20 á íslenskum tíma. Sjá stöðuna hér. Sigurvegarinn tryggir sér sæti í 36 holu úrslitaleik mótsins, sem fer fram á morgun.


