Dagbjartur og Hlynur í baráttunni í Svíþjóð
Dagbjartur Sigurbrandsson fór beint til Svíþjóðar eftir sigurinn á Íslandsmótinu á Korpúlfsstöðum um síðustu helgi til keppni á FootJoy Skåne Challenge mótinu á Nordic mótaröðinni á Söderslatts golfvellinum. Auk hans eru í mótinu Hlynur Bergsson og Aron Bergsson en sá síðarnefndi er bróðir Andreu Bergsdóttur sem keppir á LETAS mótaröðinni.
Eftir 36 holur af 54 er Dagbjartur jafn í 17. sæti á fimm höggum undir pari (71-68).
Hlynur Bergsson er á -3 (68-73) og Aron Bergsson lék á sex yfir pari og komst ekki í gegnum niðurskurðinn.


