Nýr vefur léttir lífið fyrir íslenska kylfinga: Allar golfveðurspár á einum stað
Golfspá (golfspa.is), er nýr veður-vefur sérstaklega ætlaður fyrir kylfinga sem sækja sér veðurspá áður en þeir fara í golf.
Hugmyndin að vefnum kviknaði heima í stofu hjá stofnandanum, sem horfði upp á fjölskyldumeðlimi liggja yfir veðurspám daginn út og daginn inn af einskærum golfáhuga. Eftir að hafa fylgst með þeim bera saman vindtölur og reikna út hentugustu klukkutímana í huganum, var ákveðið að láta verkin tala og smíða tól sem gerir þetta sjálfvirkt fyrir alla golfvelli landsins.
Reiknar út sérstakan „golfstuðul“
Golfspá sýnir ekki bara hefðbundnar veðurtölur, heldur keyrir vefurinn gögnin í gegnum formúlu sem reiknar út sérstakan golfstuðul. Stuðullinn gefur spilaveðri hvers klukkutíma einkunn frá 0 upp í 10, þar sem vindurinn vegur þyngst, svo fljótlegt er að sjá hvenær dagsins besti glugginn er.
Á Golfspá má meðal annars finna:
- Besta rástímann: Klukkutímaspá og ráðleggingar um besta rástímann fyrir alla 63 golfvelli landsins, allt að sjö daga fram í tímann.
- Samanburð hlið við hlið: Spálíkön Yr.no og Veðurstofu Íslands eru sýnd hlið við hlið svo auðvelt er að sjá ef þeim ber ekki saman.
- Yfirlit og sólargang: Veðurkort af landinu öllu ásamt upplýsingum um sólargang, svo þú vitir hvenær birtan fer að flæða. Einnig eru sér flokkar um landssvæði.
Sérsíða fyrir hvern einasta völl
Hver einasti golfvöllur á landinu fær sína eigin undirsíðu. Sem dæmi má nefna að Hólmsvöllur í Leiru heldur úti sínum upplýsingum á golfspa.is/vollur/holmsvollur.
Anton Logi Lúðvíksson, stofnandi golfspa.is segir að vefurinn sé hannaður með farsímanotkun í fyrirrúmi, enda flestir kylfingar á ferðinni eða með símann við höndina þegar rástímar eru skoðaðir.
„Um er að ræða hreint áhugaverkefni sem er drifið áfram af ástríðu einni saman. Vefurinn er algjörlega án auglýsinga og án skráningar, og byggir eingöngu á opnum gögnum frá norsku og íslensku veðurstofunni. Við bjóðum íslenskum kylfingum að nota að vild, ókeypis,“ segir Anton Logi.
Kylfingar eru hvattir til að kynna sér málið og prófa tólið fyrir næsta hring á golfspa.is


