Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Misjafnt gengi landsliðanna í Evrópukeppninni
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 12. júlí 2026 kl. 09:26

Misjafnt gengi landsliðanna í Evrópukeppninni

Fern landslið Íslands luku leik á Evrópumótum á laugardag. Karlaliðunum gekk nokkuð betur en kvennaliðunum.

Karlalið Íslands endaði í 11. sæti en leikið var í Eistlandi. Íslendingar unnu Belga í lokaleik í holukeppni. Liðið vann Svíþjóð í fyrstu umferð holukeppninnar og tryggðu sér þar með sæti sitt áfram í efstu deild.

Kvennalandsliðið tapaði öllum þremur leikjunum í holukeppninni en leikið var í Írlandi. Lokaleikurinn var gegn Belgíu sem tapaðist 2-3. Liðið endaði í 16. sæti mótsins.

Piltalandsliðið lék á Spáni og endaði í 10. sæti og tapaði úrslitaleik um 9. sætið gegn Noregi 3,5-1,5. Liðið er áfram í efstu deild á næsta ári.

Stúlknalandsliðið lék í Sviss og endaði í 18. sæti mótsins eftir tap gegn Hollandi 3,5-1,5 í lokaleiknum.

Karlalandsliðið:

Aron Emil Gunnarsson, GOS
Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG
Tómas Eiríksson Hjaltested, GR
Skúli Gunnar Ágústsson, GKG
Sigurður Bjarki Blumenstein, GR
Veigar Heiðarsson, GA

Þjálfari: Þorsteinn Hallgrímsson
Sjúkraþjálfari: Baldur Gunnbjörnsson

Kvennalandsliðið:

Elsa Maren Steinarsdóttir, GL
Eva Kristinsdóttir, GM
Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS
Guðrún Jóna Nolan Þorsteinsdóttir, Bretland
Karen Lind Stefánsdóttir, GKG
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR

Þjálfari: Logi Sigurðsson
Sjúkraþjálfari: Árný Lilja Árnadóttir

Piltalandsliðið:

Arnar Daði Svavarsson, GKG
Björn Breki Halldórsson, GKG
Gunnar Þór Heimisson, GKG
Hjalti Kristján Hjaltason, GKG
Kristján Karl Guðjónsson, GM
Óliver Elí Björnsson, GK

Þjálfari: Andri Þór Björnsson
Sjúkraþjálfari: Bjartmar Birnir

Stúlknalandsliðið:

Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, GR
Bryndís Eva Ágústsdóttir, GA
Embla Hrönn Hallsdóttir, GKG
Eva Fanney Matthíasdóttir, GKG
Lilja Maren Jónsdóttir, GA
Pamela Ósk Hjaltadóttir, GKG

Þjálfari: Guðrún Brá Björgvinsdóttir
Sjúkraþjálfari: Alexandra Eir Grétarsdóttir