Mikill áhugi á GOLF EXPO 2026
Undirbúningur fyrir GOLF EXPO 2026 gengur frábærlega og ljóst að áhuginn á sýningunni er mikill, bæði meðal sýnenda og gesta. Allt bendir til þess að stemningin verði með eindæmum góð þegar opnað verður kl 11:00 í Laugardalshöll 7. mars næstkomandi.
Skráning sýnenda hefur farið fram úr væntingum og stefnir í að allt gólfpláss sýningarinnar verði uppselt, sem stendur er einungis um 13% af gólfplássinu óbókað.
Gert er ráð fyrir 10–12 þúsund gestum á sýninguna og skapast þar einstakt tækifæri fyrir fyrirtæki í tengslum við golf, ferðalög, heilsu, tækni, útivist og þjónustu til að kynna sig fyrir sínum markhópi samankomin á einum stað í Höllinni.
Kannanir á sambærilegum sýningum benda til þess að 50–60% gesta kaupi vörur eða þjónustu á meðan á sýningunni stendur.
Sýningin dregur að sér bæði fagaðila og áhugafólk og býður upp á sterkan vettvang til að efla vörumerki og skapa raunveruleg viðskiptatækifæri.
Sýningarplássin sem eftir standa eru á meðal þeirra síðustu sem verða úthlutuð, og því mikilvægt að fyrirtæki sem vilja taka þátt hafi samband við skipuleggjendur sem allra fyrst.




