Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Mikil ánægja með Golf Expo 2026 - aftur í maí 2027
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 26. júní 2026 kl. 06:28

Mikil ánægja með Golf Expo 2026 - aftur í maí 2027

„GOLF EXPO 2026 tókst einstaklega vel og við erum afar stolt af því að hafa skilað af okkur sýningu þar sem bæði gestir og sýnendur voru mjög ánægðir,“ segir Björgvin Þór Rúnarsson Iceland Golf Expo en ákveðið hefur verið að efna til sýningar 14. og 15. maí á næsta ári.

Hátt í 20 þúsund gestir sýninguna þá tvo daga sem hún stóð yfir í vetur, sem að sögn Björgvins sýnir vel hversu mikill áhugi er á golfi, golfvörum, þjónustu, ferðalögum, heilsu og tengdum lausnum hér á landi.

Meðfylgjandi eru niðurstöður viðhorfskönnunar sem framkvæmd var meðal sýnenda eftir sýninguna.

Þar kemur meðal annars fram að:

  • 94,5% svarenda voru ánægðir eða mjög ánægðir með GOLF EXPO 2026.
  • 91,9% töldu að þeir hefðu náð markmiðum sínum vel eða mjög vel með þátttöku á sýningunni.
  • 94,6% töldu líklegt eða mjög líklegt að fyrirtæki þeirra tæki aftur þátt í GOLF EXPO.
  • 100% svarenda töldu að gestir sýningarinnar pössuðu vel eða mjög vel við markhóp fyrirtækisins.

 „Þetta eru niðurstöður sem staðfesta að GOLF EXPO er orðinn öflugur vettvangur fyrir fyrirtæki, golfklúbba, þjónustuaðila og alla sem vilja ná beint til golfáhugafólks á Íslandi.

Við höfum jafnframt farið vel yfir ábendingar sýnenda og munum nýta þær til að gera sýninguna 2027 enn sterkari. Markmiðið er að byggja áfram á þeim góða grunni sem lagður var árið 2026, fjölga golftengdum aðilum, styrkja upplifun gesta og skapa enn betri vettvang fyrir kynningar, sölu, tengslamyndun og viðskiptatækifæri,“ segir Björgvin en

GOLF EXPO verður haldin í maí 2027 og að því loknu er stefnt að því að sýningin verði haldin á tveggja ára fresti.

Heimasíða sýningarinnar: https://www.golfexpo.is/is