Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Miðnætursólin lét sig vanta á vel heppnuðu Artic móti
Föstudagur 3. júlí 2026 kl. 09:53

Miðnætursólin lét sig vanta á vel heppnuðu Artic móti

Miðnætursólin lét sig vanta á Artic miðnæturmótið á Akureyri um síðustu helgi. Engu að síður var stemmningin góð, fullt í mótið og 54 útlendingar mættu norður í land og létu sólarleysið ekki á sig fá. Þeir komu þeir frá Bandaríkjunum, Kanada, Þýskalandi, Englandi, Hollandi, Svíðþjóð, Noregi og Danmörku.

Heimamenn voru ánægðir með þetta gamalgróna mót. „Við hjá Golfklúbbi Akureyrar viljum þakka okkar styrktaraðilum fyrir mótið, Icelandair og Skógarböðunum. Einnig viljum við þakka sjálfboðaliðum og starfsfólki sem unnu hér hörðum höndum dagana fyrir mót og á meðan mótinu stóð. Við óskum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn og hlökkum til að taka á móti kylfingum á næsta ári, en mótið verður haldið dagana 24. - 26. júní,“ segir á heimasíðu GA. 

Hér má sjá lista yfir verðlaunahafa í mótinu í ár en sigurvegari í punktakeppninni kom frá Svíþjóð:
Nándarverðlaun:
Fimmtudagur -
4.hola: Jim Smalley 23cm
8.hola: Guðmundur Sigurjónsson 187cm
11. hola: Bergþór Karlsson 223cm
14. hola: Steinmar H. Rögnvaldsson 188cm
18. hola: Steve Adams 46cm

Föstudagur -
4.hola: Kristín Ösp 70cm
8.hola: Richard Williams 313cm
11. hola: Guðmundur E. Lárusson 177cm
14.hola: Arnar Páll Guðmundsson 170cm
18.hola: Valgarð Thoroddsen 44cm

Punktakeppni m/forgjöf - Arctic Open meistari
1.sæti: Patrik Burda Svíþjóð 81 punktur
2.sæti: Ásgeir Andri Adamsson GA 78 punktar (betri seinni 18)
3.sæti: Óðinn Ómarsson GKF 78 punktar

Höggleikur án forgjafar
1.sæti: Tumi Hrafn Kúld GA 143 högg
2.sæti: Ingi Steinar Ellertsson GA 148 högg
3.sæti: Ottó Hólm Reynisson GA 148 högg

Höggleikur án forgjafar 55+ karlar
1.sæti: Guðmundur Sigurjónsson GA 152 högg
2.sæti: Jón Birgir Guðmundsson GA 157 högg
3.sæti: Ólafur Auðunn Gylfason GA 159 högg

Höggleikur án forgjafar konur
1.sæti: Halla Berglind Arnarsdóttir GA 168 högg
2.sæti: Eva Hlín Dereksdóttir GA 176 högg
3.sæti: Marcy McAuley Kanada 178 högg

Verðlaunahafar í kvennaflokki.
Verðlaunahafar í punktakeppninni.
Guðmundur og Auðunn í efstu sætum í 55+ hjá körlum.