McIlroy um titilvörnina á Masters: „Það er mjög erfitt að vinna þetta mót“
Eftir sögulegan sigur á 90. Masters-mótinu á Augusta National, þar sem Rory McIlroy varð aðeins fjórði leikmaðurinn í sögunni til að verja titilinn, mætti hann einlægur til leiks á blaðamannafund. Þrátt fyrir að hafa leitt með sex höggum þegar helgin hófst, var sigurinn langt frá því að vera auðveldur. Hér er samantekt úr (video)viðtalinu við Rory sem sjá má hér á kylfingur.is
Tilfinningarnar eftir sigurinn
Rory viðurkenndi að pressan hefði verið önnur nú en í fyrra þegar hann náði alslemmunnni, „Career Grand Slam“.
„Mér fannst það svo erfitt að vinna í fyrra vegna þess að ég var að reyna að vinna bæði Masters og ná alslemmunni. En á þessu ári áttaði ég mig á því að það er bara mjög erfitt að vinna Masters-mótið yfirhöfuð,“ sagði Rory og uppskar hlátur í sal fréttamanna. Hann bætti því við að hann hefði ekki trúað því ef einhver hefði sagt honum fyrir fram að par (á seinni 36 holunum) um helgina myndi duga til sigurs.
Erfiðar aðstæður á lokahringnum
Rory sagði að vindurinn á lokahringnum hefði gert völlinn erfiðan viðureignar, sérstaklega á seinni níu holunum. Hann þurfti að treysta mikið á stutta spilið þó upphafshöggin með dræver og járnaspilið hefði verið betra en á þriðj adegi - og nefndi sérstaklega mikilvægar bjarganir á 16. og 17. holu en þar þurfti hann að pútta utan flatar og vippa úr erfiðum aðstæðum. „Að vera með sex högga forystu fyrir helgina... það hefði verið dálítið beisk pilla að kyngja ef ég hefði ekki náð mér yfir marklínuna.“
Lærdómur frá Tom Watson á 12. braut
Þegar Rory var spurður út í teighöggið á hinni sögufrægu 12. braut, rifjaði hann upp ráð sem hann fékk frá goðsögninni Tom Watson þegar hann spilaði með honum æfingahring árið 2009.
„Watson sagði mér að bíða alltaf þangað til ég finndi hvar vindurinn ætti að vera og slá svo strax, eins fljótt og hægt er,“ útskýrði Rory. Hann sagðist hafa sýnt mikla þolinmæði á teignum því vindurinn var ekki alltaf að koma úr sömu átt - þar til hann fann rétta augnablikið til að slá með 9-járninu, sem reyndist vera eitt mikilvægasta högg mótsins. „Ég miðað á miðja flöt en boltinn rann svo til hægri í fuglafæri sem ég nýtti mér.“
Heppnin með á 15. braut
Rory lýsti því hvernig hann skipulagði þriðja höggið á 15. braut til að fá nægan spuna á boltann á harðri flötinni. Hann viðurkenndi þó að vindurinn hefði slegið boltann niður í stað þess að bera hann yfir vatnið. „Sem betur fer stoppaði hann. Það munaði mjög litlu að hann rúllaði aftur ofan í vatnið. Ég þakka lukkustjörnunum fyrir þetta högg.“
Hvað kennir Augusta manni um lífið?
Aðspurður um hvað mótið hefði kennt honum um lífið, svaraði Rory hugsi: „Ætli það sé ekki að góðir hlutir gerist fyrir þá sem bíða. Eða bara að halda áfram. Haltu bara áfram með hausinn niðri. Ef þú leggur vinnuna í þetta og vinnur í réttu hlutunum, þá kemur að því að hlutirnir ganga upp.“
Andlega hliðin og fjölskyldan
Rory ræddi einnig um þá miklu andlegu orku sem golf krefst og hversu erfitt sé að halda einbeitingu í fjóra daga. „Þetta er langur tími í harðri keppni. Það er erfitt að láta ekki hugann reika eitthvað og halda einbeitingu í svona langan tíma. Líklega er þetta erfiðasta íþróttin hvað varðar andlega þáttinn. Hann sagði það hafa verið dásamlegt að hafa foreldra sína viðstadda að þessu sinni, en þeir misstu af sigrinum í fyrra.
„Ég þurfti eiginlega að sannfæra þau um að koma á þessu ári, því þau héldu að ástæðan fyrir því að ég vann í fyrra væri sú að þau voru ekki hérna,“ sagði hann léttur í bragði. Hann sagðist hafa fyllst mikilli gleði þegar hann sá fjölskyldu sína við bakhlið 18. flatarinnar: „Trúi því ekki að ég hafi nýbúið að gera þetta aftur.“
Rory var spurður hvað hafi valdið honum mestum áhyggjum á hringnum. „Ætli það sé ekki óvissan um hvernig boltinn lægi í karganum á 18. holu en það fór vel,“ sagði hann.
Framtíðin
Með sinn sjötta risatitil í húsi segist Rory vera á góðum stað með leik sinn og líkama. Hann ætlar að njóta sigursins áður en hann snýr aftur til keppni eftir tvær vikur, en leggur áherslu á að hann ætli sér ekki að staðna hér. „Ég er ekki að setja tölu á það, en ég vil klárlega ekki hætta hér.“
Kylfuval Rory’s á nokkrum brautum:
- 3. hola (Fugl): Dræver í glompu, lob wedge, eitt pútt.
- 4. hola (Tvöfaldur skolli): 5-járn af teig.
- 7. hola (Fugl): Dræver og sandjárn.
- 8. hola (Fugl): Dræver og 6-járn.
- 12. hola (Fugl): 9-járn.
- 13. hola (Fugl): Dræver og 8-járn.
- 18. hola (Skolli): Dræver og 8-járn í öðru höggi.


