Magnaður golfhringur hjá Sigurði Arnari
Sigurður Arnar Garðarsson, atvinnukylfingur úr GKG lék frábært golf og kom inn á tíu undir pari í öðrum hring á móti á Nordic mótaröoðinni á Sand Valley golfsvæðinu í Póllandi í dag.
Sigurður fékk átta fugla og einn örn, 30-33 en hann hóf leik á 10. holu.
Með frammistöðunni skaust Sigurður upp töfluna og er jafn í 5. sæti fyrir lokadaginn á -13.
Hinir íslensku keppendurnir komust ekki í gegnum niðurskurðinn:
Hlynur Bergsson -4
Logi Sigurðsson -3
Aron Júlíusson +1
Dagbjartur Sigurbrandsson +2
Daníel Ísak Steinarsson +4


