Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Logi og Sigurður Arnar í 8. sæti í Póllandi
Logi var að þeyta frumraun sína á Nordic mótaröðinni. Hann stóð sig vel.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 11. apríl 2026 kl. 17:10

Logi og Sigurður Arnar í 8. sæti í Póllandi

Logi Sigurðsson úr GS og Sigurður Arnar Garðarsson úr GKG stóðu sig vel á móti á Nordic mótaröðinni sem fram fór á Sand Valley golfsvæðinu í Póllandi og lauk í dag. Þeir enduðu jafnir í 8. sæti á sex höggum undir pari.

Sigurður Arnar var í toppbaráttunni frá byrjun en Logi vann sig smám saman inn í hana með þriggja högga bætinu hvern dag.

Logi var í fuglastuði og fékk sjö lokadaginn, þrettán alls sem og einn örn.

Auk þeirra voru fimm aðrir í hópi þátttakenda, þeir Aron Snær Júlíusson (75-76), Dagbjartur Sigurbrandsson (74-73), Daníel Ísak Steinarsson (81-78), Hlynur Bergsson (71-80) og Skúli Gunnar Ágústsson (79-74). Þeir komust ekki í gegnum niðurskurðinn.

Íslensku kylfingarnir verða aftur á ferðinni eftir tvo daga þegar næsta mót á mótaröðinni fer fram á sama svæði.