Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Lilja Maren vann og fór holu í höggi
Þriðjudagur 26. maí 2026 kl. 16:59

Lilja Maren vann og fór holu í höggi

Lilja Maren Jónsdóttir úr Golfklúbbi Akureyrar sigraði á fyrsta móti Unglingamótaraðar GSÍ sem fram fór á Þorláksvelli um síðustu helgi. Lilja lék frábært golf og endaði á fimm undir pari og fór holu í höggi á síðasta keppnishring á 2. holu.

Lilja lék hringina þrjá á 77-67-67 en Bryndís Eva Ágústsdóttir, einnig úr GA, varð önnur en hún lék á parinu, 73-70-73.

Pamela Ósk Hjaltadóttir, GKG, varð þriðja á þremur yfir pari, 69-77-73 höggum.

Sara María Guðmundsdóttir úr GM vann í flokki 15-16 ára stúlkna. Hún lék á 77-76-72 höggum, þremur yfir í heildina.

Lokastaðan: