Fréttir

Landsmót golfhópa karla í Kiðjabergi 4. til 6. september
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
þriðjudaginn 13. ágúst 2024 kl. 10:17

Landsmót golfhópa karla í Kiðjabergi 4. til 6. september

Golfklúbbur Kiðjabergs mun halda nýtt liðamót dagana 4. til 6. september nk. Mótið ber heitið Landsmót golfhópa karla og tekur sér til fyrirmyndar Íslandsmót klúbba og Pollamótið á Akureyri í fótbolta. Einungis 16 lið komast í mótið og geta sjö kylfingar verið í liði þ.e. sex sem spila hverju sinni og einn varamaður.

Í samtali við Kylfing útskýrir Þórður Rafn Gissurarson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Kiðjabergs, hvernig mótið kom til.

„Ég hef farið reglulega með mínum vinahópi að keppa í Pollamótinu á Akureyri sem er fótboltamót í bumbubolta en þetta er árlegur viðburður hjá okkur. Ótrúlega gaman að fara með félögunum, keppa á mótum öðrum liðum, skemmta sér og njóta. Það hefur blundað í mér hvort að það væri hægt að búa til golfútgáfu af þessu móti. Það er fullt af golfhópum á Íslandi og mér fannst líklegt að það væri vettvangur að halda golfmót þar sem keppt er um hver er besti golfhópur landsins.“

Hvernig er leikfyrirkomulagið?

„Það svipar til Íslandsmóts klúbba unglinga. Byrjar á að liðin spila 9 holu höggleik með forgjöf og topp fjögur skorin gilda. Eftir það er liðum raðað í fjóra fjögurra liða riðla og spilaðar þrjár umferðir af 9 holu holukeppni m. forgjöf á móti hinum liðunum í riðlinum. Topp tvö liðin í hverjum riðli spila um sæti 1 til 8 og neðri tvö um sæti 9 til 16. Allt í allt eru þetta sjö umferðir, þ.e. einn höggleikur og sex holukeppnisleikir en síðasta umferðin er 18 holu holukeppni m. forgjöf. Síðasta kvöldið verður lokahóf þar sem verður verðlaunaafhending, dýrindis kvöldverður og trúbador sem mun skemmta þátttakendum fram á nótt.“

Fyrir hverja er þetta mót?

„Mótið er í raun fyrir alla karla. Hóparnir geta hafa verið stofnaðir fyrir 30 árum eða í síðustu viku. Geta verið kylfingar með +5 í forgjöf eða 20 og þvert á aldur þó svo að við miðum við að liðsmenn séu 20 ára eða eldri. Mótið er góður vettvangur til að mynda nýjan golfhóp og bætast við þann mikla fjölda golfhópa sem nú þegar eru starfræktir.“

Er Landsmót golfhópa karla skemmtimót eða fúlasta alvara?

„Þetta er blanda af bæði en þó aðallega skemmtun. Hópur af vinum að eiga nokkra góða daga saman, spila á móti og kynnast öðrum liðum og loka sumrinu á flottan hátt. Liðið getur t.d. gist í bústað hérna í nágrenninu, skellt sér í pottinn með drykk eftir leiki dagsins og mætt misbrattir til leiks morguninn eftir. Þetta er aðallega félagslegt en það eru ákveðin viðmið svo að kylfingar geti tekið þátt. Hámarks vallarforgjöf í mótinu verður 24 og krafa um að liðsmenn séu með gildandi forgjöf, hafi spilað allavega þrjá golfhringi til forgjafar á þessu ári. Ég get þó lofað því að menn vilja bera sigur úr býtum en verðlaunin fyrir efstu þrjú sætin verða af dýrari gerðinni. Einnig verða nándarverðlaun alla daga, lengsta teighögg og mögulega eitthvað meira.“

Hvað munu golfhóparnir keppast um?

„Fyrst og fremst er það montrétturinn að vera besti karlagolfhópur landsins. Það eitt og sér er ekki metið til fjárs. Sigurliðið fær farandbikar og auk eru glæsileg verðlaun í boði fyrir efstu þrjú sætin og önnur verðlaun. Verðlaunin koma frá okkur flottu samstarfsaðilum sem eru Ölgerðin (Boli), 66 Norður, Eagle Golfferðir, Ecco og ÓJK-ÍSAM.“

Er ætlunin að hafa Landsmót golfhópa karla sem árlegan viðburð?

“Það er vissulega planið. Liðin sem taka þátt í þessu móti fá forgang í mótið á næsta ári. Ég get lofað því að þau lið sem taka þátt í ár munu vilja koma aftur að ári og verða því fegin að þurfa ekki að berjast fyrir þeim sætum sem eru eftir.“

Hvað með landsmót golfhópa kvenna?

„Það er ætlunin að vera líka með landsmót golfhópa kvenna en það verður líklegast á næsta ári nema að kvennagolfhópar sendi mér póst á næstu dögum til að lýsa yfir áhuga og vilji hafa svipað mót fyrir sig. Það mót yrði seinni part september en einungis ef það verður mikil eftirspurn. Það þarf allavega tíu lið svo að þetta verði að raunveruleika.

Hvernig gengur skráning?

„Ég heyrði fyrst í nokkrum golfhópum sem ég vissi um og talaði við forsvarsmenn þeirra. Óhætt að segja að þetta sló í gegn og nokkrir sem skráðu sig strax. Aðrir mjög áhugasamir. Að svo stöddu eru tíu lið skráð til leiks. Einungis sex pláss eftir. Ég veit um þó nokkuð af áhugasömum liðum sem hafa ekki enn tilkynnt sig til leiks þrátt fyrir mikinn áhuga. Hinsvegar gildir fyrstur kemur fyrstur fær. Ef lið eru of lengi að hugsa sig um er hætta á að fá ekki pláss. Við verðum þó með biðlista ef áhugi er fyrir því. Þetta er einfalt, bara senda tölvupóst á mig, [email protected] eða hringja í 486-4495.“

Að lokum, hvað er mótsgjaldið?

„Mótsgjaldið er 180 þúsund krónur per lið þ.e. 30 þúsund krónur per mann. Ef það er aukamaður (sjöundi maður) bætist við 30 þúsund krónur. Þetta verður grand mót og alvöru slútt á sumrinu,“ sagði Þórður Rafn að lokum.

Kiðjabergsvöllurinn er...

... einn sá fallegasti á landinu.