Karen og Daníel best í Lexus bikarnum
Karen Lind Stefánsdóttir og Daníel Ísak Steinarsson sigruðu á Lexus mótinu sem er á GSÍ mótaröðinni og fór fram á Leirdalsvelli Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar. Þetta var sjötta mót sumarsins, leiknar voru 54 holur. Karen og Daníel eru nýir sigurvegarar á GSÍ mótaröðinni.
Daníel lék flott golf og var undir pari alla hringina. Hann fékk m.a. tvo erni á lokahringnum, á 14. og 16. braut. Daníel lék hringina þrjá á 68-68-67.
Aron Emil Gunnarsson frá Selfossi endaði annar og átti besta lokahringinn, hann endaði á fimm undir pari eins og Sigurður Bjarki Blumenstein sem var með forystu fyrir lokahringinn eftir að hafa leikið á sjö undir á öðrum hring. Sigurður var ekki alveg eins heitur í lokahringnum sem hann lék á pari og endaði á því að deila öðru sætinu með Aroni.
Böðvar Bragi Pálsson fór holu í höggi á 9. braut á öðrum keppnisdegi.
í kvennaflokki var Karen Lind með forystu frá upphafi til loka móts og endaði á átta yfir pari. Þrátt fyrir basl á fyrri níu holunum í lokahringnum var hún í sérflokki og vann með átta högga mun.
Önnur varð Þóra Sigríður Sveinsdóttir á +16 og þriðja Perla Sól Sigurbrandsdóttir á +17.



