Hulda Clara stóð sig vel á sínu fyrsta móti
Hulda Clara Gestsdóttir byrjar vel á LET Access mótaröðinni en hún endaði jöfn í 8. sæti í sínu fyrsta móti á Madaëf Golfs Ladies mótinu sem haldið var í Marokkó 12.-14. apríl. Andrea Bergsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir komust báðar í gegnum niðurskurðinn.
Hulda Clara lék hringina þrjá á parinu, 71-73-71.
Andrea lék á 79-72-60, fjórum yfir og endaði í 29. sæti.
Ragnhildur Kristinsdóttir endaði á +7 og lék hringina á 77-74-72 höggum og endaði í 42. sæti.


