Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Hulda Clara í 2. sæti fyrir lokadaginn í Tékklandi
Hulda Clara í Tékklandi. Mynd/LETAccess.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 13. júní 2026 kl. 18:04

Hulda Clara í 2. sæti fyrir lokadaginn í Tékklandi

Hulda Gestsdóttir er í 2. sæti og fyrir lokadaginn á Check Ladies mótinu á LET Access mótaröðinni sem fram fer í Tékklandi. Hulda er á pari eftir 36 holur, höggi á eftir forystukonunni Natalie Armbruester frá Sviss.

Aðstæður voru erfiðar á öðrum keppnisdegi því lægsta skor dagsins var 72 högg, parið en það var einmitt skor Huldu Clöru í dag. Hún fékk þrjá fugla og þrjá skolla.

Þetta er fyrsta ár Huldu á LET Access mótaröðinni en hún hefur byrjað vel og er fyrir þetta mót í 24. sæti á stigalistanum.

Ragnhildur Kristinsdóttir lék annan hringinn á +6, 78 höggum og fékk sjö skolla og einn fugl. Hún er jöfn í 16. sæti á 150 höggum.

Andrea Bergsdóttir lék líka á 78 höggum í dag og er +9 eftir 36 holur jöfn í 33. sæti.

Staðan.