Hlynur og Dagbjartur meðal tíu efstu í Póllandi
Þrír íslenskir kylfingar voru í toppbaráttunni á Sand Valley Masters mótinu sem lauk í Póllandi í dag. Mótið er hluti af Nordic mótaröðinni sem er sú þriðja sterkasta í Evrópu. Tveir voru meðal tíu efstu, Hlynur Bergsson og Dagbjartur Sigurbrandsson.
Hlynur Bergsson endaði í 7. sæti en hann lék á átta höggum undir pari, 68-68-66.
Dagbjartur Sigurbrandsson varð í 8. sæti á sjö undir pari, 69-69-65. Þrusu spilamennska hjá þeim félögum.
Daníel Ísak Steinarsson endaði í 31. sæti og lék á tveimur undir pari, 67-69-72.
Logi Sigurðsson (+2), Sigurður Arnar Grétarsson (+8), Aron Snær Júlíusson (+10) og Skúli G. Ágústsson (+11).


