Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Hlynur og Dagbjartur í 11. og 16. sæti í Stokkhólmi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 4. júlí 2026 kl. 11:34

Hlynur og Dagbjartur í 11. og 16. sæti í Stokkhólmi

Hlynur Bergsson og Dagbjartur Sigurbrandsson áttu báðir slakan lokahring á Mastercard mótinu í Stokkhólmi á Nordic mótaröðinni, þeirri þriðju sterkustu í Evrópu. Þeir enduðu þó í 11. og 16. sæti.

Hlynur lék hringina þrjá á +2 (72-70-76) og endaði jafn í 11. sæti.

Dagbjartur var höggi á eftir Hlyni, á +3 (73-70-76) og endaði jafn í 16. sæti.

Dagbjartur er í 25. sæti og Hlynur í því þrítugasta á stigalistanum. Sigurður Arnar Garðarsson tók ekki þátt í þessu móti en hann er í 32. sæti á listanum.