Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Hlynur og Dagbjartur góðir á besta golfvelli Noregs
Hlynur Bergsson lék fínt golf í Noregi.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 27. júlí 2026 kl. 09:51

Hlynur og Dagbjartur góðir á besta golfvelli Noregs

Hlynur Bergsson og Dagbjartur Sigurbrandsson áttu ágætt mót á Nordic mótaröðinni í síðustu viku. Hlynur endaði jafn í 18. sæti og Dagbjartur í 26. sæti. Leikið var á Holtsmark golfvellinum í Noregi sem kynnir sig sem besta golfvöll landsins en hann er hannaður af Robert Trent Jones II.

Hlynur lék á sex undir 71-70-69 og Dagbjartur á fjórum undir pari, 72-70-70.

Sigurður Arnar Garðarsson var meðal keppenda en hætti eftir 14 holur í fyrsta hring eftir mjög góða spilamennsku á fyrri níu holunum (-3) en fékk svo fjóra skolla fram á 14. holu þegar hann hætti. Kylfingur.is er ekki með vitneskju um ástæður þess að hann þurfti að hætta leik.

Dagbjartur er í 26. sæti á stigalistanum eftir 15 mót, Hlynur í 28. sæti eftir 17 mót og Sigurður Arnar er í 32. sæti eftir ellefu mót.