Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Haraldur og Gunnlaugur í hópi með þremur Masters sigurvegurum á lokaúrtökumótum fyrir OPEN
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 27. júní 2026 kl. 13:12

Haraldur og Gunnlaugur í hópi með þremur Masters sigurvegurum á lokaúrtökumótum fyrir OPEN

Haraldur Franklín Magnús og Gunnlaugur Árni Sveinsson verða innan um stórstjörnur á lokaúrtökumótum fyrir OPNA mótið, The Open. Þrír fyrrverandi Masters sigurvegarar verða meðal 300 kylfinga sem freista þess að komast á The Open. Tuttugu bestu kylfingarnir úr lokaúrtökumótunum komast á The Open. 

Haraldur Franklín endaði jafn í efsta sæti á einu af svæðis úrtökumótunum en hann lék á sjö höggum undir pari.

Leikið er á fjórum völlum í jafn mörgum lokaúrtökumótunum, þremur á Englandi og einum í Skotlandi, þriðjudaginn 30. júní. The Open fram fer á Royal Birkdale vellinum í Englandi um miðjan júlí. Tuttugu bestu, fimm á hverjum stað, úr hverju lokaúrtökumóti, komast á The Open.

Haraldur sem vann sér þátttökkurétt á OPEN á Carnoustie í Skotlandi 2028 mun leika á Dundonald vellinum í Skotlandi. Meðal þekktra kylfinga þar má má nefna Dustin Johnson, einn besta kylfing heims undanfarin áratug en hann hefur keppt á LIV mótaröðinni undanfarin á. Hann á að baki tvo risasigra, á Opna bandaríska og Masters.

Þá er Englendingurinn Robert Rock í hópnum en hann á að baki tvo áratugi á Evrópumótaröðinni þar sem hann vann tvisvar. Hann hætti 2022 en hefur tekið þátt í nokkrum mótum síðan.

Nick Carlsson er meðal keppenda en hann er hann á íslenska unnustu. Hann leikur á Hotel Planner mótaröðinni, þeirri næst sterkustu í Evrópu en þar er Haraldur líka með keppnisrétt.

Keppendur á Dundonald.

Gunnlaugur Árni Sveinsson keppir á West Lancashire vellinum í Englandi og meðal keppenda þar eru nokkrar stórstjörnur, þar á meðal tveir sem hafa sigrað á Masters, þeir Sergio Garcia frá Spáni og Englendingurinn Danny Willett. Garcia hefur verið á LIV mótaröðinni og reyndi fyrir sér í lokaúrtökumóti í fyrra en komst ekki inn á Opna mótið. Fleiri þekktir eru í hópnum, m.a. Matt Wallace sem hefur sigraði fimm sinnum á DP Evrópumótaröðinni, síðast í Sviss 2024 og hann á einn sigur að baki á PGA mótaröðinni sem hann hefur einnig keppt á. Þá má nefna fleiri þekkt nöfn eins og Marcous Armitage frá Englandi og Indverjann Shubhankar Sharma.

Keppendur á West Lancashire.

Kylfingur.is var á Carnoustie 2018 og Páll Ketilsson ræddi þar við Harald Franklín fyrir og eftir hans þátttöku.