Haraldur á þremur undir pari í Austurríki
Haraldur Franklín Magnús byrjaði vel og lék fyrsta hringinn á þremur undir pari á Interwetten mótinu sem fram fer á Schladming-Dachstein golfvellinum í Austurríki en margir Íslendingar hafa skíðað í fjöllunum við bæinn.
Haraldur segir að leikskipulagið hafi gengið vel en hann fékk fimmtán pör, fugla á þremur holum.
Haddi er jafn í 28. sæti mótsins. Hann hefur verið í tveggja vikna fríi en hann sagði við kylfing.is að það væri nauðsynlegt að skipuleggja mótin vel, ekki væri hægt að taka þátt í öllum.
Efstur eftir fyrsta hring á Christian Braeunig á -8.


