Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Gunnlaugur keppir á US Open - lék frábært golf í úrtökumóti
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 9. júní 2026 kl. 07:33

Gunnlaugur keppir á US Open - lék frábært golf í úrtökumóti

Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, verður meðal keppenda á Opna bandaríska meistaramótinu, US Open, sem er eitt af fjórum risamótunum í golfi atvinnuimanna en hann náði frábærum árangri í lokaúrtökumóti í Ohio í gær og vann sér þátttökurétt í mótinu. Það mun fara fram á hinum fræga Shinnecocok Hills velli í Southampton N.Y. Gunnlaugur er fyrsti íslenski kylfingurinn að vinna sér þátttökurétt á US Open karla.

Gunnlaugur lék magnað golf í úrtökumótinu en leiknar voru 36 holur á The Lakes Golf & Country Club vellinum í Westerville um fjögur laus sæti í risamótinu. Dagbjartur Sigurbrandsson var einnig á meðal keppenda mótsins, en hann öðlaðist þátttökurétt eftir frábæra spilamennsku í undankeppni í maí. Dagbjartur lék hringina tvo á +5. 

Gunnlaugur lék fyrri hringinn á 67 höggum, fimm undir pari og var jafn í fjórða sæti að honum loknum. Gunnlaugur fór vel af stað á seinni hringnum og lék fyrri níu holurnar á þremur höggum undir pari. Tvöfaldur skolli á tíundu holunni reyndist honum dýr, en hann svaraði vel fyrir sig og fékk þrjá fugla á næstu fjórum holunum. Fjögur pör á síðustu fjórum holunum skiluðu honum hring upp á 68 högg, samtals á -9. Þrír aðrir kylfingar enduðu á sama skori og þurftu þeir því að fara í bráðabana um þrjú sæti. Gulli var á flöt í tveimur höggum og mátti þrípútta því einn keppendanna lék holuna á tveimur yfir pari. Gulli gerði það og komst áfram. Einn þessara þrigga keppenda var J.B. Holmes, PGA sigurvegari.

Lokastaðan.

Yfir tíu þúsund kylfingar tóku þátt í úrtökumótum víða um Bandaríkin. Í hópi þeirra sem kepptu í úrtökumótinu voru fyrrum bandarískir meistararar eins og Web Simpson. Fleiri þekkt nöfn voru í hópnum, m.a. Max Homa, Tom Kim, Tony Finau, Billy Horschel, Lucas Glover og Aaron Baddely.

Íslenskir kvenkylfingar hafa leikið á US Open kvenna, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir gerði það í tvígang og Valdís Þóra Jónsdóttir einu sinni.

Skjáskot úr sjónvarpsútsendingu. Gulli á flöt í bráðabananum þar sem úrsliti réðust.