Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Gunnlaugur góður í Evrópuliðinu sem vann Bandaríkin á Arnold Palmer mótinu
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 5. júlí 2026 kl. 17:00

Gunnlaugur góður í Evrópuliðinu sem vann Bandaríkin á Arnold Palmer mótinu

Gunnlaugur Árni Sveinsson bætti enn einni skrautfjöður í hatt sinn þegar alþjóðlega úrvalslið háskólakylfinga sigraði lið Bandaríkjanna á Arnold Palmer mótinu en það er sterkasta áhugamannamót heims. Gulli skilaði tveimur vinningum í hús í gríðarlega harðri keppni sem endaði með eins stigs sigri alþjóðaliðsins, 30.5-29,5. Þetta er annað árið í röð sem alþjóðaliðið sigrar og Gunnlaugur var í því í bæði skiptin. Keppt var á Tralee strandvellinum á vesturströnd Írlands.

Leikið var með sama sniði og í Ryder og Solheim bikurunum, holukeppni, fjórbolta, fjórmenning og tvímenning. Lið Bandaríkjanna spilar við lið alþjóðlegra kylfinga en allir kylfingarnir koma úr bandaríska háskólagolfinu. Liðin samanstanda af 12 körlum og 12 konum.

Fyrir lokaumferðina var alþjóðaliðið með eins stig forskot og því var mikil spenna. Í lokaumferðinni var leikinn tvímenningur og þar fór okkar maður á kostum og sigraði Connor Williams 6/5. Gulli vann átta af þrettán holum og lék frábært golf.

Á fyrsta keppnisdegi lék Gulli með hinni kólumbísku Maria Jose marin en hún er í 5. sæti á stigalista áhugakvenna í heiminum. Þau töpuðu 3/2.

Á öðrum degi var leikin tvöföld umferð. Gunnlaugur og félagi hans í fjórmenningi var Daniel Bennett sem er 13. á heimslista áhugamanna en okkar maður er 17. Þeir léku flott golf og unnu þá bandarísku, Kihei Akina og Wheaton Ennis á síðustu holu, 1/0.

Lokapúttið hjá Gulla í tvímenningnum sem hann vann örugglega 6/5. Skjáskot úr útsendingunni.

Lokastaðan.

Hér er útsending frá tvímenningnum