Fréttir

Gulli á sex undir pari og í 13. sæti
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 10. mars 2026 kl. 11:03

Gulli á sex undir pari og í 13. sæti

Gunnlaugur Árni Sveinsson endaði í 13. sæti á fyrsta háskólamóti sínu á árinu sem lauk í gær á Sawgrass CC vellinum í Ponte Vedra Beach í Flórída. The Hayt mótið telst eitt það sterkasta á bandaríska háskólagolfárinu þar sem mörg af öflugustu liðum landsins taka þátt.

Gunnlaugur Árni lék hringina þrjá á 67, 74 og 69 höggum og lauk mótinu samtals á sex höggum undir pari. Hann var í öðru sæti eftir fyrsta hring og komst um tíma í forystu á öðrum hring. Fyrir utan erfiðan fjögurra holu kafla á öðrum hring var spilamennska hans mjög góð, en aðeins einn kylfingur í mótinu fékk fleiri fugla en hann.

Jackson Koivun, sem er efstur á heimslista áhugakylfinga, sigraði mótið á ellefu höggum undir pari og var fimm höggum á undan Gunnlaugi Árna. Þeir léku í sama ráshóp fyrstu tvo keppnisdagana en Koivun hefur nú unnið öll þrjú háskólamótin sem hann hefur tekið þátt í á þessu ári.

LSU, skóli Gunnlaugs Árna, hafnaði í fjórða sæti í liðakeppninni. Auburn háskólinn stóð uppi sem sigurvegari á 28 höggum undir pari, fimm höggum á undan LSU.

Næsta mót Gunnlaugs Árna hefst eftir viku nærri Los Angeles í Kaliforníu.