Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Guðrún Brá vann holukeppnina í þriðja sinn
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 21. júní 2026 kl. 22:16

Guðrún Brá vann holukeppnina í þriðja sinn

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili varð Íslandsmeistari í holukeppni kvenna í þriðja sinn eftir 6/5 sigur á Heiðu Rakel Rafnsdóttur úr GM í úrslitaleik á Urriðavelli í dag.

Sigur Guðrún í úrslitaleiknum var öruggur en Heiða Rakel hefur ekki áður verið í þessari stöðu en frammistaða hennar vakti athygli þó hún hafi ekki náð að sýna sitt besta gegn Íslandsmeistaranum úr Keili sem nú er handhafi beggja Íslandsmeistaratitla einstaklinga.

Guðrún mætti Perlu Sól Sigurbrandsdóttur í undanúrslitum og úr varð hörkuleikur en Perla er efst á stigalista GSÍ mótaraðarinnar. Úrsltin réðust ekki fyrr en á síðustu braut en Guðrún vann 17. holuna og var með holu í forskot fyrir lokabrautina sem þær báðar léku á pari.

Perla vann svo Fjólu Margréti Viðarsdóttur úr Golfklúbbi Suðurnesja í jöfnum leik um 3. sætið.

Guðrún Brá hefur verið með takmarkaðan þátttökurétt á LET Evrópumótaröðinni, þeirri sterkustu í Evrópu. Hún verður meðal keppenda þar í næstu viku. 

Lokahringurinn á Urriðavelli.