Fréttir

Guðrún Brá og Hulda Clara í topp 25 í Suður Afríku
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 10. mars 2026 kl. 10:52

Guðrún Brá og Hulda Clara í topp 25 í Suður Afríku

Þrjá íslenskar golfkonur kepptu á móti á Sunshine mótaröðinni í Höfðaborg í Suður Afríku um síðustu helgi. Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir enduðu í 23. og 25. sæti en Andrea Bergsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurðinn.

Guðrún Brá lék á fimm yfir pari, 74,75,72 höggum og Hulda Clara var höggi á eftir henni, +6 og lék hringina þrjá á 72-76-74.

Andrea lék hringina tvo á +11, 77 og 78 höggum.

Danielle du Toit frá S-Afríku sigraði á fjórum höggum undir pari.

Þær Guðrún, Hulda og Andrea verða meðal keppenda á næsta móti sem hefst 11. mars og fer fram á hinum þekkta Killarney velli í Jóhannesarborg.

Lokastaðan.