Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Guðrún Brá í stuði í S-Afríku
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 19. mars 2026 kl. 17:27

Guðrún Brá í stuði í S-Afríku

Guðrún Brá Björgvinsdóttir atvinnukylfingur er í jöfn í 6. sæti á Platinium mótinu á Sunshine mótaröðinni í S-Afríku en leikið er á Blair Atholl golfsvæðinu rétt utan við Jóhannesarborg en það er hannað af engum öðrum en Gary Player. Guðrún hefur leikið frábærlega og er á níu höggum undir pari fyrir þriðja og lokahringinn.

Guðrún lék fyrsta hringin á 69 höggum og annan hring á sex undir pari, 66 höggum. Golfið hefur verið magnað hjá okkar konu, hún hefur verið sjóðheit á slættinum og hitt nánast allar brautir og flatir. Pútterinn var sjóðheitur á öðrum hringnum og Guðrún notaði aðeins 27 högg á flötunum sem er einpútt á annarri hverri flöt að meðaltali.

Guðrún er að leika á sínu fjórði móti og hún var í 3. sæti í fyrsta mótinu sem hún lék í og var í 23. sæti í því næsta en komst ekki í gegnum niðurskurðinn í því þriðja.

Andrea Bergsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir eru í hópi keppenda en komust ekki í gegnum niðurskurðinn. Hulda Clara lék á höggi undir pari og Andrea á þremur yfir.

Staðan.