Guðrún Brá í sjöunda sæti
Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK og Ragnhildur Kristinsdóttir GR eru í ágætismálum eftir fyrsta hringinn á LET access mótaröðinni á Spáni. Guðrún lauk fyrsta hring á pari og er jöfn í 7.sæti og Ragnhildur á tveimur yfir og jöfn í 21. sæti.
Þær hófu leik á 2. hring um 9 leytið í morgun. Ragnhildur er á parinu á seinni hring og tvo yfir í heildina. Guðrún hefur átt erfiða byrjun og er 3 yfir pari í dag og 3 yfir í heildina.
Emma Thorngren frá Svíþjóð er í efsta sæti á þremur höggum undir pari.
Sjá stöðuna hér.