Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Guðrún Brá á fjórum yfir í S-Afríku
Laugardagur 25. apríl 2026 kl. 09:49

Guðrún Brá á fjórum yfir í S-Afríku

Guðrún Brá komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Investec SA mótinu á LET Evrópumótaröð kvenna á Royal Cape golfvellinum í Höfðaborg í Suður Afríku.

Guðrún náði sér ekki á strik á öðrum hring og lék hann á fjórum höggum yfir pari. Hún byrjaði illa og fékk fjóra skolla á fyrri níu holunum en á seinni níu var hún með tvo skolla og tvo fugla. Hún var á pari á fyrri hringnum.

Guðrún verður meðal keppenda á MCB Ladies Classic mótinu í Máritíus, sem fer fram dagana 1.-3. maí.