Guðmundur Oddsson látinn
Guðmundur Oddsson fyrrverandi formaður GKG er fallinn frá 83 ára að aldri.
Afskipti Guðmundur af golfíþróttinni hófust áður en Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar var stofnaður árið 1974.
GKG sendi tilkynningu þar sem hér segir:
„Sem bæjarfulltrúi í Kópavogi barðist hann til dæmis fyrir því að byggður yrði golfvöllur í Fossvogsdalnum. Þau áform gengu ekki eftir og í framhaldinu sameinuðust Golfklúbbur Kópavogs og Golfklúbbur Garðabæjar undir merkjum GKG.
Guðmundur lét strax til sín taka, var fyrstu árin í kjörnefnd, sat í stjórn og var kosinn formaður árið 2006, gegndi því embætti til 2015 ári eftir að byggingu íþróttamiðstöðvarinnar lauk.
Guðmundur var endurkjörinn formaður 2018 og við tók tímabil uppbyggingar; Íþróttamiðstöðin var stækkuð og golfhermum fjölgað í 22. Með þeim hætti var GKG með stærstu Trackman Golfherma aðstöðu í heimi. Guðmundur lét af formennsku GKG árið 2022, fór stoltur frá sínu verki. Skýr framtíðarsýn og vilji til verka hefur skilað GKG, barna- unglinga og afrekstarfi á heimsvísu, glæsilegum 27 holu golfvelli og einstakri innanhúss aðstöðu. Þó svo að Guðmundur væri hættur sem formaður hélt hann áfram að fylgjast með, leit oft í heimsókn til okkar hafði skoðanir á málum og var óspar á ráðleggingar.
Um leið og við kveðjum góðan félaga, þá sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur til Stellu, Sigrúnar, Sunnu og fjölskyldna þeirra. Minning Guðmundar mun lifa um ókomna tíð, bæði í hans verkum sem og hinum margrómaða GKG anda.“



