Guðmundur á níu undir í Finnlandi
Guðmundur Kristjánsson endaði í 42. sæti á Vierumäki Finnish Challenge mótinu á Áskorendamótaröðinni sem lauk í gær. Guðmundur lék á níu undir pari sem hann skilaði fyrstu þrjá dagana en síðasta daginn var hann á pari.
Haraldur Franklin og Axel Bóasson voru einnig meðal þátttakenda en náðu ekki í gegnum niðurskurðinn. Haddi var á -4 og Axel á -2.
Guðmundur er í 62. sæti á heildarstigalistanum, Haraldur í 92. sæti og Axel er í 185. sæti. Það styttist í úrtökumót og því þurfa okkar menn að ná mjög góðum árangri í næstu mótum ef þeir ætli sér að sleppa við þau. Þeir eru allir skráðir til leiks á mót í Svíþjóð í vikunni.