Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

GOS og Árborg undirrita samning - Sameiginleg sýn um sterkara samfélag
Miðvikudagur 18. mars 2026 kl. 17:44

GOS og Árborg undirrita samning - Sameiginleg sýn um sterkara samfélag

Golfklúbbur Selfoss (GOS) og Sveitarfélagið Árborg hafa gert með sér þjónustusamning sem undirstrikar mikilvægi öflugs íþrótta-, forvarna- og félagsstarfs í sveitarfélaginu. Samningurinn styður við áframhaldandi uppbyggingu GOS og tryggir að félagið geti haldið áfram að skapa góða aðstöðu fyrir kylfinga á öllum aldri og getustigum að því er segir í frétt frá GOS.

Sérstök áhersla er lögð á barna- og ungmennastarf, forvarnir og að efla þátttöku almennings í golfíþróttinni. Undanfarin 10 ár hefur GOS verið í miklum framkvæmdum og uppbyggingu sem hafa styrkt starf félagsins til muna. Sá árangur hefði ekki náðst án mikilvægs stuðnings.

„Stjórn GOS vill færa bæjarstjórn Árborgar og Braga Bjarnasyni Bæjarstjóra sérstakar þakkir fyrir þann öfluga stuðning sem félagið hefur notið á þessum tíma.

Framundan eru spennandi tímar þar sem GOS mun halda áfram að byggja upp öflugt og metnaðarfullt starf í þágu samfélagsins.“