Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Golf Saudi eykur fjárfestingu í kvennagolfinu – fjórar milljónir dala í verðlaunafé
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 1. október 2026 kl. 06:46

Golf Saudi eykur fjárfestingu í kvennagolfinu – fjórar milljónir dala í verðlaunafé

Golf Saudi hefur tilkynnt um aukna langtímafjárfestingu í atvinnugolfi kvenna og verður frá árinu 2027 stór samstarfsaðili mótsins The Championship í Bretlandi. Mótið verður þá í fyrsta sinn hluti af bæði LPGA-mótaröðinni og Ladies European Tour (LET).

Verðlaunafé mótsins verður fjórar milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði um hálfs milljarðs íslenskra króna, og verður leikið dagana 19.–25. júlí 2027. Mótið hefur verið haldið í London frá árinu 2021 en keppnisvöllurinn fyrir 2027 verður kynntur síðar. Hin 17 ára Anna Huang vann mótið árið 2026.

Golf Saudi hefur verið samstarfsaðili LET frá árinu 2020 og tilkynnti samhliða nýjan langtímasamning um stuðning við stigalista LET, Order of Merit, frá 2027. Markmiðið er að styrkja mótaröðina og skapa fleiri tækifæri fyrir atvinnukylfinga yfir allt keppnistímabilið.

Fjárfestingin er jafnframt hluti af mun stærri áætlun um uppbyggingu golfíþróttarinnar í Sádi-Arabíu. Þar eru nú um 4.500 skráðir kylfingar en stefnt er að því að þeir verði fleiri en 30.000 innan fimm ára. Yfir 15.000 manns hafa þegar skráð sig í golfkennslu og rúmlega 4.000 eru á biðlista. Konur eru rúmlega þriðjungur þátttakenda í grasrótarverkefnum Golf Saudi.

Golf Saudi hyggst einnig vinna með LPGA að aukinni kennslu og þjálfun og skapa þannig skýrari leið fyrir stúlkur og konur frá fyrstu kynnum af golfi og allt upp í keppni meðal atvinnumanna.

„Við viljum að konur og stúlkur í Sádi-Arabíu geti séð framtíð fyrir sér í golfi – sem leikmenn, þjálfarar og leiðtogar,“ segir Abeer AlJohani, varaforseti Golfsambands Sádi-Arabíu í tilkynningu.