Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Góð byrjun hjá þeim íslensku í Frakklandi
Hulda brosir í Bergvíkinni en hún lék gott golf á fyrsta hring.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 5. júní 2026 kl. 16:51

Góð byrjun hjá þeim íslensku í Frakklandi

Íslensku golfkonurnar á LET Access mótaröðinni í Evrópu eru við leik í Frakklandi og er Hulda Clara Gestsdóttir jöfn í 11. sæti eftir fyrsta hring.

Hulda lék ótrúlega jafnt og gott golf og fékk sautján pör og einn fugl, 71. högg.

Ragnhildur Kristinsdóttir er jöfn í 30. sæti á +1, 73 högg. Hún fékk tvo skolla og einn fugl.

Andrea Bergsdóttir er á +2 í 43. sæti. Hún fékk tvo fugla, tvo skolla og einn tvöfaldan skolla.

Staðan.