Frábært golf hjá Kristjáni sem sigraði á tuttugu og einum undir
Kristján Karl Guðjónsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar gerði sér lítið fyrir og lék 54 holurnar á 21 höggi undir pari Þorláksvallar á fyrsta móti Unglingamótaraðarinnar um síðustu helgi. Kristján lék hringina þrjá á 65-64-66 höggum og fékk alls nítján fugla.
Hjalti K. Hjaltason úr GKG varð annar á tíu undir pari og lék hringina þrjá á 68-68-70, tíu undir pari. Þeir Máni Freyr Vigfússon og Halldór Jóhannsson, báðir úr GK, deildu þriðja sætinu á níu undir pari. Alls voru átta efstu kylfingarnir á undir pari.

Hjalti, Kristján, Máni og Halldór.


