Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Fleiri landsbyggðar golfklúbbar komnir yfir þúsund félaga
Auður og Hlynur Geir framkvæmdastjóri GOS.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 2. júlí 2026 kl. 21:22

Fleiri landsbyggðar golfklúbbar komnir yfir þúsund félaga

Mikil fjölgun félaga hefur verið í mörgum golfklúbbum á landsbyggðinni. Í vor voru komnir á tólftahundrað félagar bæði í Golfklúbbi Suðurnesja og Golfklúbbi Grindavíkur en mikil fjölgun hefur verið í íþróttinni suður með sjó. Þúsundasti félaginn í Golfklúbbi Selfoss bættist nýlega í hópinn í hinum ört vaxandi golfklúbbi við Ölfusá á Suðurlandi. Golfklúbbur Akureyrar fór yfir þúsund félaga markið í fyrra.

Fjölgun í þessum og flestum golfklúbbum landsins er skýrt merki um þann mikla vöxt og jákvæðu þróun sem átt hefur sér stað á síðustu árum. Þó er hluti af þessari fjölgun fjaraðilargjöld þar sem kylfingar hafa gerst félagar í öðrum klúbbi en heimaklúbbi.

Nýr meðlimur númer 1000 á Selfossi er hún Auður Auðunsdóttir sem nýlega flutti á Selfoss ásamt Sigvini H. Sigurvinssyni. „Við hjá GOS bjóðum þau hjartanlega velkomin í klúbbinn og hlökkum til að sjá þau njóta golfsins og félagslífsins á Svarfhólsvelli,“ segir á Facebooksíðu GOS.

Við þessi tímamóti fékk Auður smá GOS pakka en henni voru afhent GOS peysa og GOS bolur í gjöf.

„Saga GOS nær yfir áratuga uppbyggingu og mikla sjálfboðavinnu þar sem félagsmenn hafa lagt hjarta sitt og sál í að byggja upp öflugan og glæsilegan golfklúbb. Á síðustu árum hefur starfsemin vaxið hratt með mikilli fjölgun félagsmanna, öflugri barna- og unglingastarfsemi, bættri aðstöðu, nýrri inniaðstöðu og áframhaldandi uppbyggingu vallarins. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu margir nýir íbúar á Selfossi og nærsveitum velja að ganga til liðs við GOS og taka þátt í því frábæra samfélagi sem hefur myndast í kringum golfið hjá okkur,“ segir jafnframt í tilkynningunni.