Fjarlægur draumur að veruleika hjá hinum 39 ára Hollick
Fjarlægur draumur hins 39 ára Michael Hollick frá Suður Afríku rættist þegar hann sigraði á BMW mótinu í München í Þýskalandi á DP Evrópumótaröðinni með því að fá fugl á 17. holu og örn á 18. holu. Fimm-járnið skilaði höggum inn á flöt á báðum brautunum og púttin fóru ofan í. Kappinn er tíundi kylfingurinn sem sigrar í fyrsta sinn á DP mótaröðinni á þessari keppnistíð.
Hollick var þremur höggum á eftir Du Plessis sem er einnig frá S-Afríku en hann var í forystu þegar þrjá holur voru eftir. Plessis tapaði einu höggi á síðustu þremur en Hollick lék á þremur undir og tryggði sér magnaðan sigur. Þetta er eitt af stóru mótunum á DP og hann fék 650 millj. kr. í peningaverðlaun og skaust upp á stigalistanum með tilheyrandi möguleikum á næstunni, sem voru ekki á dagskránni hjá honum fyrir mótið.
Hollick byrjaði á Sunshine mótaröðinni, sem er ein af minni mótaröðunum fyrir 14 árum og það gekk lítið í tíu ár. Hann lagði keppniskylfunum að mestu fyrir fjórum árum og fór að kenna golf en keppti í nokkrum mótum. Árið 2024 fóru hjólin að snúast í rétta átt og hann vann sér þátttökurétt á DP mótaröðinni í árslok 2025 en þetta er hans fyrsta ár þar.
It all came down to this.
Birdie at 17. Eagle at 18.
Michael Hollick completes an unforgettable finish to become a DP World Tour winner 🏆#BMWInternationalOpen pic.twitter.com/0sPwrdDDWo
"I was actually calm the whole day, stuck to the same stuff I've done the whole week,"
Michael Hollick reflects on his maiden win on the DP World Tour 🎙️
"You start making birdies and it's easy to start thinking too far ahead, and I kind of brought myself back.
"I just said,… pic.twitter.com/80l4oIwkWc


