Fjaðrir fjúka af LIV - margir á útleið
Fjaðrirnar fjúka af LIV golfmótaröðinni en all nokkrir stórkylfingar hafa sagt skilið við hana og enn fleiri eru að hugsa sinn gang. Nýjasta tilkynningin er frá risameistaranum frá S-Afríku, Louis Oosthuizen en hann hefur ákveðið að halda áfram keppnisgolfi á DP mótaröðinni.
Sigurvegari Opna breska meistaramótsins árið 2010 mun láta af hlutverki sínu sem leikmaður og fyrirliði Southern Guards GC, alsuðurafríska liðsins sem hann hefur leitt frá stofnun LIV Golf og stendur honum enn afar nærri.
„Fyrir fimm árum tók ég eina bestu ákvörðun lífs míns þegar ég sagði skilið við hefðbundna golfheiminn og gekk til liðs við eitthvað mjög sérstakt með LIV Golf og Southern Guards GC,“ sagði Oosthuizen.
„Ég er mesti stuðningsmaður liðakeppni í golfi og mun alltaf vera það. Golfið þarf meira af henni.“
Þrátt fyrir eindregna trú sína á liðafyrirkomulagið telur Oosthuizen að sveigjanlegri mótadagskrá gefi honum bestu möguleikana á að keppa á því stigi sem hann gerir enn kröfu um til sjálfs sín.
„Ég áttaði mig á því að ég á mikið meira inni og ég óttaðist mest að erfitt yrði að ráða við dagskrána í LIV 2.0,“ útskýrði hann.
„Mér finnst ég eiga nokkur ár eftir af góðu keppnisgolfi og eina leiðin til að vera virkilega skarpur og samkeppnishæfur er að hafa dagskrá sem ég stjórna sjálfur.“
„Þetta er líklega erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka á ferlinum, en ég verð að gera það sem ég tel rétt fyrir golfið mitt. Það breytir engu um hvað mér finnst um liðið eða strákana.“
Þegar Oosthuizen leit yfir tíma sinn í deildinni lýsti hann þakklæti sínu í garð þeirra sem gerðu vegferðina mögulega.
„Ég verð PIF og LIV ævinlega þakklátur fyrir það sem þau gerðu fyrir mig. Ég eignaðist nýja vini og tengdist núverandi vinum mínum og fjölskyldu enn nánari böndum,“ sagði hann.
Aðrir kylfingar sem hafa tilkynnt að þeir verði ekki áfram á LIV eru t.d. spænski risameistarinn Jon Rahm og landi hans Sergio Garcia. Pólverjinn ADrian Meronk er þegar „fluttur“ á DP og Belginn Thomas Pieters stefnir þangað einnig. Bandaríkjamaðurinn Patrick Reed hætti um síðustu áramót og hefur gengið vel á DP mótaröðinni á þessari keppnistíð.
Aðrar stórstjörnur LIV eins og Bryson CeChambeau, Cameron Smith, Tyrell Hatton, Dustin Johnson og Joaquin Niemann eru að hugsa sinn gang samkvæmt nýjustu fréttum.

Adrian Meronk fagnaði endurkomu á DP mótaröðina með sigri á Dunhill mótinu í Skotlandi nýlega.



