Ný spænsk golfstjarna á toppnum
Ný spænsk golfstjarna hefur farið nokkuð mikinn á DP mótaröðinni á þessu ári og er orðinn efstur á Race to Dubai stigalista atvinnumanna. Eugenio Chacarra heitir kappinn og vann sinn þriðja sigur á tímabilinu á DP í Indlandi um síðustu helgi.
Spánverjinn hefur verið að fikra sig upp heimslistann og vann bæði sigur á KLM í Hollandi og á móti í Ítalíu fyrr í sumar. Þriðji sigurinn bættist svo við í Indlandi þar sem stórstjörnur á borð við Rory Mcilroy, Tommy Fleetwood, Robert Macintyre og Justin Rose voru mættir til leiks ásamt fleirum.
Völlurinn í Indlandi er sérstakkur og þar voru dræverar skildir eftir utan pokann hjá flestum. Chacarra sigraði með tveggja högga mun en hann leiddi með tveimur höggum fyrir lokahringinn. Nýsjálendingurinn Daniel Hillier þjarmaði að honum í lokin en ekki nóg. Chacarra lék með eina tá brotna en bjargaði sér með verkjatöflum. Hann var sjóðheitur á flötunum. Hér að neðan er skemmtilegt viðtal við kappann þar sem einn spyrla er enginn annar en sexfaldur risameistari, Nick Faldo.
Chacarra er kominn í efsta sæti stigalistans en skammt á eftir honum eru Bandaríkjamaðurinn Patrick Reed og N-Írinn Rory Mcilroy.



