Fimmfaldur risameistari vippaði út í vatn
Fimmfaldur risameistari, Bandaríkjamaðurinn Bruce Koepka, lenti í vandræðum á 17. brautinni á PGA móti vikunnar á PGA National vellinum á Palm Beaches. Þetta voru svona vandræði með meðalkylfingurinn tengir alveg við.
Koepka sem kom til baka á PGA mótaröðina í ársbyrjun vippaði að því er virtist þokkalega en boltinn rann yfir flötina og endaði í vatnstorfærunni fyrir neðan. Risameistarinn fór úr öðrum sokknum, boltinn var sláanlegur á mörkum vatns og drullu, en þaðan var næsta högg ekki heldur nógu gott, bara hálfa leið. Þriðja vippið var þó gott og bjargaði tvöföldum skolla.


