Fékk níu fugla og einn örn í lokahringnum - vann á 30 undir pari
Bandaríkjamaðurinn Wyndham Clark tryggði sér sigur á Byron Nelson mótinu á PGA mótaröðinni um síðustu helgi með því að leika lokahringinn á ellefu höggum undir pari. Hann fékk níu fugla og einn örn.
Clark var tveimur höggum á eftir forystusauðnum Si Woo Kim fyrir lokadaginn. Aðstæður voru góðar og Clark nýtti sér þær en hann lék engan hring á yfir 66 höggum og endaði á 30 höggum undir pari. Hann lék seinni níu holurnar á 28 höggum þar sem hann fékk sex fugla og einn örn. Í mótinu fékk hann 28 fugla á 72 holunum. Það er magnað en líklega verður vallarstjórinn að gera eitthvað fyrir mótið á næsta ári svo völlurinn sé ekki eins og leikfang í höndum kylfinga. Clark komst ekki í gegnum niðurskurðinn á PGA risamótinu vikuna á undan þar sem upphafshöggin hans með dræver voru ekki nógu góð. Á TPC Craig Ranch völlurinn er talsvert víðari til veggja og Clark nýtti sér það. Þetta var hans fjórði sigur á mótaröðinni en hann vann Opna bandaríska (US Open) 2024.
Scottie Scheffler, efsti maður heimslistans var í toppbaráttunni eins og í undanförnum mótum en náði ekki að sigra. Líklega bara spurning hvenær það gerist næst.
Syrpa frá fuglaflóðinu hjá Clark á lokahringnum. Frábært golf.


