Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Farsælt afmælisár hjá GSG – 18 ára ungliði skráði sig 142 sinnum í golf
Hinn 18 ára gamli Sigurður Ingi Blöndal var útnefndur ungliði ársins. Hann hefur sýnt mikinn áhuga og elju við golfiðkun sína en hann skráði sig alls 142 sinnum á rástíma á árinu og lækkaði forgjöf sína um sex.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 25. nóvember 2026 kl. 10:46

Farsælt afmælisár hjá GSG – 18 ára ungliði skráði sig 142 sinnum í golf

Golfklúbbur Sandgerðis átti farsælt 40 ára afmælisár. Rekstrartekjur klúbbsins námu tæplega 103 milljónum króna og hagnaður ársins var tæpar 22 milljónir. Félagsmönnum fjölgaði verulega og eru þeir nú 420 talsins. Þá fjölgaði skráðum golfhringjum á Kirkjubólsvelli um rúm 25% milli ára.

Þetta kom fram á aðalfundi Golfklúbbs Sandgerðis sem haldinn var í klúbbhúsinu við Kirkjubólsvöll fimmtudaginn 19. nóvember.

Mikil aukning hefur orðið í rekstri klúbbsins en á síðasta ári námu rekstrartekjur fyrir fjármagnsliði 65,7 milljónum króna. Tekjuaukningin nemur því um 37 milljónum króna, eða rúmlega 56%.

Nýtt æfingasvæði á döfinni

Áfram verður lögð mikil áhersla á uppbyggingu Kirkjubólsvallar og starfsemi klúbbsins. Meðal stærstu verkefna framundan er nýtt æfingasvæði sem mun bæta aðstöðu kylfinga og skapa aukin tækifæri til uppbyggingar barna- og unglingastarfs. Með bættri aðstöðu horfa stjórnendur klúbbsins einnig til frekari fjölgunar félagsmanna.

Ungliði ársins bókaði 142 rástíma

Á aðalfundinum voru þrír félagsmenn heiðraðir fyrir framlag sitt til klúbbsins á árinu.

Elvar Bjarki Friðriksson var útnefndur félagsmaður ársins. Hann hefur verið ötull þátttakandi í félagsstarfi og mótahaldi klúbbsins auk þess að vera boðinn og búinn til að leggja sitt af mörkum.

Ásgrímur Pálsson, jafnan kallaður Bóbó, var útnefndur sjálfboðaliði ársins. Ásgrímur er formaður vallarnefndar og hefur unnið mikið starf við viðhald og uppbyggingu Kirkjubólsvallar. Hann varð einnig stigameistari klúbbsins á árinu.

Hinn 18 ára gamli Sigurður Ingi Blöndal var útnefndur ungliði ársins. Hann hefur sýnt mikinn áhuga og elju við golfiðkun sína en hann skráði sig alls 142 sinnum á rástíma á árinu og lækkaði forgjöf sína um sex.

Andrea Ásgrímsdóttir, framkvæmdastjóri GSG, afhenti þeim viðurkenningarnar.

Guðfinnur Örn áfram formaður

Engar breytingar urðu á stjórn Golfklúbbs Sandgerðis á aðalfundinum. Guðfinnur Örn Magnússon var endurkjörinn formaður og með honum í stjórn sitja áfram Ari Gylfason, Atli Þór Karlsson, Björn Ingvar Björnsson og Róbert Pálsson.

Varamenn í stjórn eru Hlynur Jóhannsson og Sveinn Hans Gíslason.

Stjórn Golfklúbbs Sandgerðis horfir bjartsýn til komandi starfsárs og þakkar félagsmönnum, starfsfólki, sjálfboðaliðum og samstarfsaðilum fyrir mikilvægt framlag á þessu farsæla afmælisári klúbbsins.

Elvar Bjarki Friðriksson var útnefndur félagsmaður ársins. Hann er hér með Andreu Ásgrímsdóttur, framkvæmdastjór. Myndir af heimsíðu GSG.

Ásgrímur Pálsson, jafnan kallaður Bóbó, var útnefndur sjálfboðaliði ársins.