Ertu að fara spila á áhugaverðum golfvelli sem fáir heimsækja?
Hefurðu spilað eða ertu að fara að heimsækja golfvöll sem er ekki endilega á ferðaáætlun margra kylfinga? Kylfingur.is birti nýlega grein um elsta golfvöllinn í Hollandi en Björn Malmquist, fréttamaður RÚV sem er með aðsetur í Brussel brá undir sig betri fætinum og tók 9 holur á Domburgsche golfvellinum og skrifaði grein sem birtist á kylfingi.is.
Það væri gaman að heyra frá kylfingum sem sækja velli heim sem fáir sækja. Það væri gaman að fá að heyra um slíka og hvetjum við kylfinga til að senda okkur myndir á [email protected] og gott ef það kæmi smá texti með.


