Erfitt hjá Guðrúnu Brá á Evian mótinu í Frakklandi
Guðrún Brá Björgvinsdóttir atvinnukylfingur úr Keili komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Opna franska Evian móti í Frakklandi. Guðrún náði sér aldrei á strik og endaði á tólf höggum yfir pari og var átta högg frá niðurskurðinum en skorið er frekar hátt í mótinu.
Guðrún byrjaði mjög illa í fyrsta hring þegar hún fékk tvo tvöfalda skolla á fyrstu fimm holunum. Á eftir fylgdu tveir skollar en einn fugl lagði skorið aðeins. Á seinni níu holunum fékk hún þriðja tvöfalda skollann, bætti við tveimur skollum og fékk einn fugl, samtals 79 högg.
Guðrún lék annan hringinn á 75 höggum, +4 og endaði í jöfn í 113. sæti á +12.
Guðrún er með takmarkaðan þátttökurétt á LET, Evrópumót kvenna, efstu deild í Evrópu. Þetta var hennar sjötta mót á þessari keppnistíð og hún hefur ekki komist í gegnum niðurskurðinn ennþá. Guðrún keppir næst á þremur mótum í röð eftir rúmar tvær vikur, í Hollandi, Tékklandi og Þýskalndi.


