Elgur á Masters matseðlinum og eðalvín hjá Rory
Rory Mcilroy kemur víð í meistaramatseði ársins á Masters mótinu en það er árleg hefð að sigurvegari síðasta árs velji meistaramatseðilinn. Rory velur m.a. beikonvafðar döðlur sem hann er alinn upp við hjá mömmu sinni, elgs-sneiðar eru einnig í forrétt en síðan er það Wago nautalund eða pönnusteiktur lax í aðalrétt, svo dæmi séu tekin.
„Fyrir mótið í fyrra var ég að borða mikið af elgskjöti. Ég var að hugsa um að hafa hann í aðalrétt en var ekki viss um að það myndi falla í kramið hjá öllum svo ég setti hann í forrétt,“ sagði Rory Mcilroy m.a. þegar hann var spurður um réttina á matseðlinum.
Hér að neðan má sjá þýðingu gerfigreindarinnar á matseðlinum.
Forréttir:
- Flatbrauð með ferskjum og ricotta: Balsamik, sterkt hunang, basilíka.
- Djúpsteiktar „Rock rækjur“: Kremuð sterk sósa.
- Döðlur vafðar í beikon: Geitaostur, möndlur.
- Grillaðir elgs-borgarar (sliders): Karamelliseruð lauksulta, ristuð hvítlauksmæjónes (aioli).
Fyrsti réttur:
- Yellowfin Túnfisk-Carpaccio: Gæsalifur (foie gras), ristað snittubrauð, graslaukur.
Aðalréttur
Val á milli:
- Wagyu nautalund eða pönnusteiktur lax:
- Meðlæti: Hefðbundin írsk „champ“ (stappa með lauk), steikt rósakál, glerjaðar gulrætur með brúnuðu smjöri og stökkir Vidalia laukhringir.
Eftirréttur
- Toffí búðingur: Vanilluís og heit tófísósa.
Vínlisti
- 2015 Salon „S“, Brut, Le Mesnil-sur-Oger, kampavín
- 2022 Domaine Leflaive, Batard-Montrachet, Puligny-Montrachet, Búrgúndí
- 1990 Chateau Lafite Rothschild, Pauillac, Bordeaux
- 1989 Chateau d’Yquem, Sauternes, Bordeaux
Vínlistinn er sá dýrasti sem boðið hefur verið upp á í mörg ár og er dýrasta flaskan tæplega 300 þúsund króna virði.



