Breytingar á Hamri - nýtt klúbbhús og breytingar á brautaröðun
Hamarsvöllur í Borgarnesi opnar fyrir alla kylfinga 15. maí en völlurinn hefur verið opnaður fyrir félagsmenn sem geta leikið hann frá kl. 11 á morgnana en það er gert vegna næturfrosts í vikunni, að því er segir í tilkynningu frá Golfklúbbi Borgarness. Ýmsar breytingar eru boðaðar hjá klúbbnum.
Nýtt klúbbhús verður opnað á næstu dögum en það er staðsett nálægt æfingasvæðinu. Við það verður gerð breyting á röðun brauta sem sjá má hér:
1. braut – Gamla 17. braut (verður par 4)
2. braut – Gamla 18. braut
3.-7. braut – Gömlu 12.-16.
8. braut – Gamla 2. braut (Við Hamarsbæinn)
9.-17. braut – Gömlu 3.-11.
18. braut – Gamla 1. braut
„Það er ýmsar ástæður fyrir þessari breytingu. Okkur finnst eðlilegt að uppröðun vallarins sé í samræmi við staðsetningu móttöku, þ.e. að 1. teigur og 18. flöt séu nálægt móttökunni / klúbbhúsi enda slíkt alþekkt á golfvallarsvæðum hérlendis sem erlendis. Einnig mun þetta fyrirkomulag hlífa framkvæmdasvæðinu okkar á nýju par 3 holunni og nýjum teigum á 1. braut. Að sama skapi þá er þessi skipting vallar hentug upp á salerni, nesti o.fl. en labbað er framhjá móttökunni frá 7. flöt að 8. teig,
Litaðar teigamerkingar
Samhliða þessu eru ný teigmerki á leiðinni, en við ætlum aftur í litakerfið í stað talna þar sem að lengd vallarins mun taka örum breytingum á næstu árum. Öftustu teigar verða svartir, næstu grænir, svo vínrauður og að lokum silfur. Við vildum ekki fara aftur í gömlu litina enda er stefna GSÍ að útrýma öllu tali um gula sem karlateiga og rauða sem kvennateiga, og erum við t.a.m. að elta GKG í litavali á teigum.
Við gerum okkur grein fyrir að breytingin mun ekki falla í kramið hjá öllum, en við erum mjög spennt fyrir að prófa þetta fyrirkomulag í sumar og reiknum með að stemningin á pallinum við 18. flöt verði rafmögnuð.“

Svona verður Hamarsvöllur leikinn í sumar.


