Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Böðvar Bragi á 67 höggum í opnun Korpu
Afrekskylfingurinn Böðvar Bragi lék á 67 höggum.
Sunnudagur 24. maí 2026 kl. 11:39

Böðvar Bragi á 67 höggum í opnun Korpu

Tæplega 190 kylfingar mættu í opnunarmót Golfklúbbs Reykjavíkur Korpu sem fór fram í gær við góðar aðstæður og var stemningin frábær frá fyrsta teig segir á heimasíðu GR.

Völlurinn kemur vel undan vetri þrátt fyrir erfiða tíð síðustu missera og voru kylfingar ánægðir með ástand hans á opnunardegi. Sama dag var Grafarholtsvöllur opnaður.

Böðvar Bragi Pálsson kom inn á besta skori dagsins, 67 höggum. Keppt var í tveimur forgjafarflokkum þar sem glæsileg verðlaun frá FootJoy voru í boði fyrir efstu sætin, auk verðlauna fyrir besta skor mótsins. Þá voru nándarverðlaun á öllum par 3 holum þar sem vinningshafar fá Gullkort í Básum.

Úrslit urðu eftirfarandi:

Punktakeppni forgjöf 14 og lægri

  1. Joao Carlos Dias – 43 punktar
  2. Hafsteinn Þór Jóhannsson – 41 punktur (betri seinni 9)
  3. Ísak Hrafn Jónasson – 41 punktur 

Punktakeppni forgjöf 14,1 og hærri

  1. Árni Kvaran – 41 punktur
  2. Finnlaugur Pétur Helgason – 40 punktar
  3. Ágústa Dröfn Kristeifsdóttir – 39 punktar (betri seinni 9)

Besta skor
Böðvar Bragi Pálsson – 67 högg

Nándarverðlaun
3. braut – Ísak Jónasson – 0,84 m
6. braut – Arnar Arinbjarnar – 1,3 m
9. braut – Gestur Jónsson og Monika Hjálmstýsdóttir – 2,47 m
13. braut – Heimir Líndal Sveinsson – 0,65 m
17. braut – Alexander Aron Ívarsson – 2,31 m